Dineout | Askur Taproom
Handverksbarinn Askur Taproom var stofnaður árið 2018. Staðsettur í sama rými og í samstarfi við Austra Brugghús bjóðum við upp á handverksbjór á 10 krönum. Ein...
Handverksbarinn Askur Taproom var stofnaður árið 2018. Staðsettur í sama rými og í samstarfi við Austra Brugghús bjóðum við upp á handverksbjór á 10 krönum. Ein...

Fullkomin gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um.
Handverksbarinn Askur Taproom var stofnaður árið 2018. Staðsettur í sama rými og í samstarfi við Austra Brugghús bjóðum við upp á handverksbjór á 10 krönum. Einnig bjóðum við upp á ýmsa aðra drykki svo flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hægt er að spila pílu á staðnum og einnig er fjöldin allur af borðspilum og öðrum leikjum.
Askur Taproom hentar þeim sem vilja njóta góðra veiga í afslöppuðu umhverfi sem og þeim sem vilja sletta úr klaufunum þegar dimma tekur um helgar.
Komdu í heimsókn og gæddu þér á bjórvalinu okkar frá Austra brugghúsi, okkar vinsælu kokteilum eða sestu niður og fáðu þér rjúkandi kaffibolla. Það er mikið líf og fjör á Ask Taproom. Tónleikar, pöbbkviss og boltinn í beinni. Og já, við erum með frítt wifi.
AFGREIÐSLUTÍMI:
SUNNUDAGA & MÁNUDAGA - LOKAÐ
ÞRIÐJUDAGA - FIMMTUDAGA - 17:00 – 23:00
FÖSTUDAGA & LAUGARDAGA - 17:00 – 03:00