Dineout | Bragðlaukar
Við erum stolt að kynna “ Bragðlaukar ” nýjan veitingastað þar sem matargerð, list og stemning mætast á einstakan hátt. Í björtu og stílhreinu rými með hengiljó...
Við erum stolt að kynna “ Bragðlaukar ” nýjan veitingastað þar sem matargerð, list og stemning mætast á einstakan hátt. Í björtu og stílhreinu rými með hengiljó...
Netbókanir hafa ekki verið stilltar enn.
Þessi veitingastaður hefur ekki lokið uppsetningu á netbókunum. Þú getur haft samband við staðinn í gegnum vefsíðu hans.
Fara á vefsíðuFyrir hópa stærri en 12 manns, vinsamlegast hafið samband í síma 767-5775 eða sendið okkur tölvupóst á netfangið bragdlaukar1@gmail.com
Við erum stolt að kynna “ Bragðlaukar ” nýjan veitingastað þar sem matargerð, list og stemning mætast á einstakan hátt.
Í björtu og stílhreinu rými með hengiljósum og gróðri, býðst gestum að njóta vel útfærðra rétta sem bæði gleðja bragðlaukana og augað. Á veggjum hanga verk þriggja íslenskra listamanna – hvert þeirra með sínu sérkenni, sem gefa staðnum einstakan karakter. Sum verkin eru einnig til sölu, fyrir þá sem vilja taka minningu með sér heim.
Matseðillinn sameinar klassíska bistró-stemningu með ferskum íslenskum hráefnum – úrvals lamb, fiskur dagsins, carpaccio og litríkar hummus-útgáfur sem gera upplifunina bæði ljúffenga og sjónrænt fallega.
Á virkum dögum bjóða Bragðlaukar upp á vinsælt hádegishlaðborð frá klukkan 11:30 til 14:00, þar sem fjölbreyttir réttir í hæsta gæðaflokki fá að njóta sín. Það er þegar orðið eftirsótt hjá starfsfólki nágranna fyrirtækja og veitir frábært tækifæri til að slaka á og njóta matarins í fallegu umhverfi með Esjuna í baksýn.
11:30 - 21:00
11:30 - 14:00
11:30 - 17:00