Dineout | Earth Lagoon Bistro
Earth Lagoon Bistro er staðsett í hjarta Mývatnssveitar og byggir á einfaldri og sígildri hugmyndafræði: Að bera virðingu fyrir gæðahráefni úr héraði og bera þa...
Earth Lagoon Bistro er staðsett í hjarta Mývatnssveitar og byggir á einfaldri og sígildri hugmyndafræði: Að bera virðingu fyrir gæðahráefni úr héraði og bera þa...
Earth Lagoon Bistro er staðsett í hjarta Mývatnssveitar og byggir á einfaldri og sígildri hugmyndafræði: Að bera virðingu fyrir gæðahráefni úr héraði og bera það fram í umhverfi sem tengir gesti við náttúruna. Við leggjum ríka áherslu á umhverfisvitund, lágmarkssóun og að styðja við heilsu og vellíðan gesta okkar og samfélagsins í heild.
Matseðillinn
Matseðillinn endurspeglar matarkistu Norðurlands; ferskur fiskur úr nærliggjandi vötnum, grænmeti ræktað í gróðurhúsum kynntum með jarðvarma, villt ber og fjallagrös, gæðamjólkurvörur frá bændum í héraðinu og íslenskt lambakjöt af skepnum sem hafa gengið frjálsar til fjalla.
Nálgun okkar er einföld: Við viljum upphefja íslenskt hráefni með örlitlum aðþjóðlegum blæ. Þó að við nýtum brögð og samsetningu hvaðanæva að úr heiminum til að láta réttina skína, slær hjarta eldhússins í takt við íslenskar hefðir og landslagið veitir okkur innblástur.
Matseðillinn okkar er í gildi alla daga frá 12:00-20:00 nema á föstudögum og laugardögum en þá er hann í gildi frá 12:00-15:00.
Sérstök þemakvöld eru í gangi alla föstudaga og laugardaga frá 17:30-20:30 og mismunandi þema um hverja helgi.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á info@jardbodin.is ef nánari upplýsinga er óskað.