Héðinn Kitchen & Bar
Héðinn Kitchen & Bar

Héðinn Kitchen & Bar

Click to see more
$$$$
Price range

Location

Seljavegur 2, Reykjavík
Location

About

Héðinn Kitchen & Bar er nýr veitingastaður í 101 Reykjavík, þar sem áður fyrr var stálsmiðjan Héðinn að Seljavegi 2. Byggingin var nýlega endurhönnuð og breytt í kaffihús, bar og veitingastað af hinu virta hönnunarfyrirtæki I AM LONDON. Óhætt er að segja að þessi staður eigi eftir að auka enn á þá sívaxandi skemmtana- og afþreyingarflóru sem er úti við Granda. Matseðillinn er breytilegur þar sem notast er við árstíðabundið hráefni hverju sinni. Ljúffengir kokteilar, drykkir, vín og frábær matur. Héðinn Kitchen & Bar er einnig með 2 einkasali sem taka hvor um sig 40 manns í sæti en hægt er að opna á milli og komast þá 80 manns fyrir í sæti. Einkasalirnir eru vinsælir fyrir margvíslega viðburði svo sem, hvataferðir, brúðkaup, árshátíðir fyrirtækja og fundi.

Information

Héðinn Kitchen & Bar er kjörinn staður fyrir dýrindis mat og frábæra drykki. Barinn opnar kl. 11.30 alla daga og eldhúsið kl. 18, en við tökum á móti þér í happy hour frá 16:00-18:00 alla daga. Eldhúsið okkar er opið 18-22 mánudaga-fimmtudaga, 18-23 á föstudögum, 11.30-15 og 18-23 á laugardögum og 11.30-15 & 18-22 á sunnudögum. Elskarðu bröns? Við bjóðum upp á bröns á laugardögum og sunnudögum frá 11:30-15:00. Og til að gera góðan bröns enn betri þá erum við núna með frábær kampavínstilboð í brönsinum! Svo komdu á Héðinn Kitchen & Bar og láttu okkur sjá um að dekra við þig.

Group bookings

Vegna bókana fyrir hópa sem telja fleiri en 8 manns, vinsamlegast hafið samband í gegnum hedinn@hedinnrestaurant.is eða síma: 419 2020
View more
Make a reservation

28. April 21:45

2 guests

Available options