Monkeys Food & Wine
Monkeys Food & Wine

Monkeys Food & Wine

Click to see more
$$$$
Price range
Wheelchair accessible

Location

Klapparstíg 28-30, Reykjavík
Location

About

Monkeys er staðsettur við Klapparstíg 28-30 í Hjartagarðinum. Gengið er inn í hlýlegt, litríkt og spennandi umhverfi þar sem gestir geta notið framandi matar. Staðurinn verður smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru undir áhrifum frá Perú og Japan. Mikil áhersla verður á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum ásamt frábærum kokteilum. Nikkei matreiðsla er heiti á matargerðinni sem mun ráða ríkjum á staðnum. Hún á uppruna sinn að rekja til seinni hluta 19. aldar þegar japanskir innflytjendur hófu að setjast að í Perú í töluverðum mæli. Þar blönduðust aldagamlar matreiðsluaðferðir frá Japan saman við fjölbreytta matarkistu Perú. Nikkei matreiðsla sameinar það besta úr hvorri matargerð s.s. virðingu fyrir hráefninu og samsetningu framandi bragðtegunda. Þannig voru japanskir réttir tengdir bragði og eldunaraðferðum frumbyggja í Perú á aðdáunarverðan hátt. Þessi blanda felur í sér það besta úr glæsilegri og fíngerðri matarmenningu Japana ásamt afburða fersku hráefni blandað kryddtöfrum frá Perú.

Information

Það er opið í hádeginu frá kl 12:00 til 14:00 alla virka daga. Við opnum fyrir kvöldverð kl 17:30 alla daga og eldhúsið lokar kl 22:00, staðurinn lokar á miðnætti. Við tökum ekki borðabókanir á Kokteilbarnum. Hann opnar klukkan 14:00 alla daga, endilega kíkið þangað inn í drykk :)

Group bookings

Aðeins er hægt að bóka borð fyrir 9 manns eða færri á netinu. Ef þú vilt bóka fyrir fleiri skaltu hafa sambandand við okkur í 519-5350 eða á póstfangið info@monkeys.is

View more
Make a reservation

25. April 23:30

2 guests

Available options