Dineout | North Restaurant
Við sækjum innblástur í norræna matarhefð og byggjum matargerð okkar á því sem íslensk náttúra gefur af sér og þeirri þekkingu sem gengið hefur mann fram af man...
Við sækjum innblástur í norræna matarhefð og byggjum matargerð okkar á því sem íslensk náttúra gefur af sér og þeirri þekkingu sem gengið hefur mann fram af man...

Fullkomin gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um.
Við sækjum innblástur í norræna matarhefð og byggjum matargerð okkar á því sem íslensk náttúra gefur af sér og þeirri þekkingu sem gengið hefur mann fram af manni.
Hér fær hráefnið að njóta sín án óþarfa málalenginga. Einfaldleikinn ræður ferðinni og bragðið segir sína sögu.
Við berum þér fjöll og firði á diskinn, hafið og heiðarnar, bjartar sumarnætur og myrkur vetrarins – brot af landi þar sem veðrið ræður för og hver árstíð á sitt bragð. Þannig viljum við segja okkar sögu af Íslandi, einn disk í senn.
North matseðill 18.500 kr.
Vín upplifun 17.000 kr.
Ofnæmi: Vegna þess hvernig matseðilinn hjá okkur er uppsettur þá getum við því miður ekki boðið upp á vegan seðil eða mjólkur lausan seðil. Við reynum að taka tillit til allra með ofnæmi, svo framarlega sem við erum látin vita fyrirfram.
Við erum með opið miðvikudaga - laugardaga frá kl 18:00
Við hlökkum til að taka á móti þér á North.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|