Dineout | Röntgen
Barseðillinn frá Hosiló er í boði þriðjudaga til laugardaga frá opnun til kl. 21:00. Röntgen er huggulegasti og skemmtilegasti bar Reykjavíkur. Enda erum við ek...
Barseðillinn frá Hosiló er í boði þriðjudaga til laugardaga frá opnun til kl. 21:00. Röntgen er huggulegasti og skemmtilegasti bar Reykjavíkur. Enda erum við ek...


Bjór · Vín · Bar · Sæti við bar · Happy Hour
Fyrir hópa og bókanir á efri hæðinni má hafa samband með því að senda tölvupóst á rontgen@rontgenbar.is

Fullkomin gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um.
Barseðillinn frá Hosiló er í boði þriðjudaga til laugardaga frá opnun til kl. 21:00.
Röntgen er huggulegasti og skemmtilegasti bar Reykjavíkur.
Enda erum við ekkert að flækja hlutina. Við bjóðum upp á hlýlega stemningu, vinalega þjónustu og ljúfa tónlist. Við blöndum himneska kokteila, erum með frábært úrval af sérvöldum vínum á sanngjörnu verði (líka náttúruvín!) og seljum fyrirtaks bjóra á krana og í flöskum. Á seðlinum eru líka afbragðs kokteilar og bjórar án áfengis.
Á sunnudögum og mánudögum eru vín og ostar í forgrunni. Miðvikudaga og fimmtudaga spila plötusnúðar seiðandi tóna. Á föstudögum og laugardögum setjum við í hærri gír og gestirnir reima á sig dansskóna þegar líða tekur að miðnætti.
Við erum líka stundum með pöbbkviss, tónleika, karaoke eða annars konar viðburði eftir stemningu. Það er best að fylgjast með dagskránni á instagram.
Komdu á Röntgen og skálaðu við kollegana eftir vinnu, kíktu í drykk og smábita á leiðinni á tónleika eða í leikhús, hittu gömlu vinina yfir hanastéli - eða djammaðu inn í nóttina um helgina. Við tökum glöð á móti þér.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|