Þú átt skilið að upplifa hið margrómaða Breiðfirska sjávarfang!
Upplýsingar
Á Sjávarpakkhúsinu leggjum við áherslu á staðbundin hráefni og sjálfbærni og gerum ávallt okkar besta í að framreiða hágæða mat með eins litlum áhrifum á umhverfið og mögulegt er.
Við erum stolt af að vinna náið með sjómönnum, bændum, matvælaframleiðendum og brugghúsum í nágrenni við okkur sem sjá okkur fyrir besta hráefni sem völ er á.