Dineout | Gamlárskvöld á SUMAC – Sumac Grill + Drinks
Gamlárskvöld á SUMAC
Gamlárskvöld á SUMAC

Sumac Grill + Drinks
Fögnum síðasta kvöldi ársins saman á Sumac!
Í tilefni áramótanna bjóðum við upp á hátíðlegan sjö rétta meze! Við ætlum að gera sérstaklega vel við okkur þetta kvöld með glæsilegum skreytingum, einstakri hátíðarstemningu og spennandi úrvali af vínum sem við opnum sérstaklega í tilefni kvöldsins. Við hlökkum til að kveðja árið með ykkur í sannkallaðri áramótaveislu!
Za’atar flatbread
hummus + möndlu paprikukrem
Humarvindill
sítrónur + aleppo
Bleikju crudo
urfa + appelsínur
_________
Kjúklingalifrarparfait
sumac + kirsuber
_________
Stökk kartafla
harissa + jurtasmjör
Íslenskt ribeye
chermoula + urfa
__________
Pistasíutart
tonka + hunangslabneh
Verð: 22.900 kr. á mann
Fullkomnaðu kvöldið með fjögurra glasa vínpörun sem sommelierinn okkar hefur sérvalið til að draga fram það besta í réttunum. Pörunin samanstendur af freyðivíni, hvítvíni, rauðvíni og eftirréttavíni.
Fyrir þá sem vilja gera enn betur við sig.
Við hlökkum til að fagna áramótunum með ykkur á Sumac!
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|