Himkok frá Osló, einn virtasti bar heims mun taka yfir The ROOF, föstudaginn 13. nóvember. Barinn hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir frumlega kokteila og skemmtilega hugmyndarfræði, og hefur ítrekað verið á lista The World’s 50 Best Bars sem og verið valinn þriðji besti bar í Evrópu.
Af þessu tilefni bjóðum við Nicola Galanducci, Federico Biserni og Paul Aguilar velkomna, þar sem þeir munu hrista saman úrval af frábærum kokteilum á The ROOF í eitt kvöld.