Dineout | Þorgrímur
Veitingastaðurinn Þorgrímur er staðsettur á Stóru Laugum í Reykjadal þar sem Aurora Farm hótelið er jafnframt að finna. Þorgrímur er fremur einfaldur veitingast...
Veitingastaðurinn Þorgrímur er staðsettur á Stóru Laugum í Reykjadal þar sem Aurora Farm hótelið er jafnframt að finna. Þorgrímur er fremur einfaldur veitingast...
Hópar allt að átta gestum geta bókað beint í gegnum Dineout.
Séu gestirnir níu eða fleiri þurfa að hafa samband við okkur fyrirfram á info@aurorafarmhotel.com eða í síma +354 670 1818. Eldofninn okkar er lítill og stærri hópar krefjast undirbúnings.
Við biðjum ykkur vinsamlegast að sýna okkur þá kurteisi að gera ekki margar bókanir yfir kvöldið og mæta svo sem einn hópur. Bókanir sem gerðar eru með þessum hætti verða afgreiddar sem aðskilin borð á bókuðum tímum og við áskiljum okkur rétt til að hafna þeim.
Greiða þarf 20% staðfestingargjald til að tryggja hópbókun.
Veitingastaðurinn Þorgrímur er staðsettur á Stóru Laugum í Reykjadal þar sem Aurora Farm hótelið er jafnframt að finna. Þorgrímur er fremur einfaldur veitingastaður; einungis eru tveir aðalréttir í boði á hverju kvöldi auk grænmetis/vegan réttar og svo eldbakaðra pítsa.
Eina reglan á Þorgrími er að allir fá eftirrétt að kvöldverði loknum.
Sætafjöldi er takmarkaður og staðurinn er einsetinn þannig að við mælum með því að gestir bóki borð.
Hráefnið er nánast allt úr héraði og mikið er lagt upp úr einföldum en bragðbóðum mat — sem allur er eldaður í eldofninum okkar.
Opening hours:
Daily from 6 to 9 PM.
Limited seating — reservations recommended.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|