Dineout | Bergssson RE Veislusalur
Glæsileg aðstaða á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn
Glæsileg aðstaða á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn
Grandagarði 16, 101 Reykjavíkurhöfn
Bergsson RE veislusalur er með fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn. Salurinn er á Grandagarði í húsi Sjávarklasans, í miðbæ Reykjavíkur. Salurinn tekur um 120 manns í sæti og fleiri í standandi veislur og móttökur. Mögulegt er að raða upp borðum á ýmsan hátt eftir fjölda og tilefni. Meðfram veggjum eru þægilegir sófar og hægindastólar og hönnun á innréttingum og ljósum gefa salnum spennandi yfirbragð. Hafnarmeginn eru svalir sem eru að hluta til yfirbyggðar. Þar geta veislugestir notið útsýnis yfir höfnina og andað að sér fersku sjávarloftinu.
Í salnum er falleg birta, góð lýsing og hljóðkerfi fyrir tal og tónlist.Matreiðslumenn Bergsson RE bjóða uppá fjölbreyttan matseðil fyrir hópa allt frá léttum pinnamat yfir í margrétta hátíðar kvöldverð. Einnig er boðið uppá kaffihlaðborð ef að þess er óskað.
Framreiðsla á mat og drykk er serstaklega skemmtileg í salnum þar sem stór framreiðsluborð og bar e fyrir miðju salarins.
Á hæðinni eru einnig 8 fundar- og vinnuherbergi á vegum Sjávarklasans.