Dineout | Blik veislusalur
Golfskálinn í Mosfellsbæ salur með einstöku útsýni
Golfskálinn í Mosfellsbæ salur með einstöku útsýni
Æðarhöfði 36, 270 Mosfellsbær
Blik Veislusalur skartar án efa einu fallegasta útsýni sem hægt er að finna úr veislusal á Reykjavíkursvæðinu. Falleg birta og veðurbrigði móta stemninguna í salnum og er útsýnið afar myndrænt.
Blik Veislusalur er í nýju og fallegu húsnæði Golfklúbbsinns í Mosfellsbæ sem staðsett er neðan við bæinn í aðeins 15 mín. akstursfjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur.
Mjög gott aðgengi er að salnum og næg bílastæði. Anddyrið er rúmgott og nóg pláss fyrir fordrykk og spjall áður en sest er til borðs.
Í anddyrinu er stór og fallegur bar og umhverfis salinn er verönd sem hægt er að ganga út á og njóta útsýnis og ferska loftsins.
Salnum er hægt að raða upp á fjölbreyttan hátt og blanda saman hringborðum og langborðum.
Blik býður upp á 3 sali, sá minnisti tekur allt að 40 í sæti.
Annar tekur 70 í sæti og 90 standandi.
Stærsti salurinn hefur rými fyrir allt að 180 sitjandi og 300 standandi.
Í salnum eru 2 skjávarpar og 2 sýningartjöld og gott hljóðkerfi fyrir tal og tónlist.
Í anddyrinu er hliðarsalur sem fyrir t.d myndasýningu eða fundarsal sé þess óskað.
Allar veitingar í salnum koma frá veislueldhúsi Blik Bistro sem sjá um veitingar í húsinu.
Athugið að salurinn er ekki leigður út á sumrin þegar golftímabilið stendur sem hæst.