Dineout | Catalina einkasalur
Í Hamraborginni í miðbæ Kópavogs er nýuppgerður fallegur salur með útsýni yfir Fossvoginn.
Í Hamraborginni í miðbæ Kópavogs er nýuppgerður fallegur salur með útsýni yfir Fossvoginn.
Hamraborg 11, 200 Kópavogur
Í Hamraborginni í miðbæ Kópavogs er nýuppgerður fallegur salur með útsýni yfir Fossvoginn. Salurinn er sérhannaður til veislu og fundarhalda með aðstöðu eins og best verður á kosið fyrir allt að 75 manns í sæti. Í horni við glugga er núna komið svið fyrir hljómsveit, plötusnúð eða skemmtikrafta.
Í salnum er bar fyrir vínveitingar og drykki og framreiðsluborð fyrir heitan mat. Gott hljóðkerfi er í salnum fyrir tal og tónlist, tveir skjávarpar og sýningartjöld, ásamt stillanlegri loftlýsingu til að skapa réttu stemninguna. Auk þess er hægt að setja upp færanlega sviðsupphækkun með ræðupúlti. Sviðið hentar fyrir ræðuhöld, skemmtiatriði og litla hljómsveit.
• 75 manns í sæti
• Bar og framreiðsluborð í salnum
• Tveir skjávarpar og sýningartjöld
• Svið fyrir hljómsveit
• Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist
• Tveir skjávarpar og sýningartjöld
• Stillanleg loftlýsing
• Fallegt útsýni yfir Fossvoginn
• Gott aðgengi beint inn af gangstétt