Á Frakkastígnum er að finna frábæran einkasal fyrir hin ýmsu tilefni fyrir 12 - 30 gesti.
Rýmið býður uppá marga möguleika í sitjandi veislum með 2 góð langborð í hádegi eða að kvöldi til.
Hentar vel til fundahalds með veitingum á meðan og eftir fund. Einnig fyrir einkasamkvæmi, sælkeraveislu, sport viðburði og afmæli.
Gott hljóðkerfi og flatskjár er til staðar. Við mælum með 3 rétta veislunni okkar fyrir hópinn og okkur hlakkar til að para veisluna ykkar með hinum ýmsu útgáfum af drykkjum.
Vinsamlegast sendið okkur póst á frakkastigur@forrettabarinn.is eða skilaboð hér á síðunni og við vinnum saman að lausn sem að hentar þinni veislu.