Dineout | Hótel Kea
Haltu fundinn eða veisluna á Hótel Kea
Haltu fundinn eða veisluna á Hótel Kea
Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri
Hótel Kea hefur löngum verið þekkt fyrir glæsilegar veislur, fyrsta flokks veitingar og faglega þjónustu. Veislusalir hótelsins henta vel fyrir viðburði eins og árshátíðir, ráðstefnur, móttökur, brúðkaupsveislur og erfidrykkjur. Salirnir, Vaðlaberg, Stuðlaberg og Hlíðaberg, bjóða upp á gott aðgengi. Auðveldlega má opna á milli eða nýta salina í sitthvoru lagi og aðlaga að hverjum viðburði fyrir sig. Við leggjum áherslu á “fundarfrið” og boðið er upp á heildstæðar fundarlausnir með allt frá gistingu og veitingum upp í stórar ráðstefnur.