Dineout | Menningarhúsið Hof
Glæsileg aðstaða fyrir allskyns viðburði í fallegu umhverfi
Glæsileg aðstaða fyrir allskyns viðburði í fallegu umhverfi
Strandgötu 12, 600 Akureyri
Í Hofi er framúrskarandi aðstaða fyrir ýmsar gerðir viðburða. Fjölbreytt úrval rýma í húsinu gefur kost á að halda þar allt frá litlum stjórnarfundum og námskeiðum upp í fjölmennar ráðstefnur, stórtónleika og veislur tengdar fundum eða ráðstefnum. Starfsfólk Menningarhússins Hofs hefur mikla reynslu af skipulagningu fjölbreyttra viðburða og veitir faglega ráðgjöf auk þess að vera skipuleggjendum innan handar við undirbúning og framkvæmd.Einnig bjóðum við upp á glæsilega veisluþjónustu fyrir stóra sem smáa hópa. Hægt er að halda allt að 500 manna veislur með opnun yfir í nærliggjandi rými. Með því að sameina nokkur rými í húsinu er hægt að halda allt að 1.000 manna móttöku.