Dineout | Miðgarður
Meeting rooms at Miðgarður Center Center Hotels
Meeting rooms at Miðgarður Center Center Hotels
Laugavegur 120
Fundarsalirnir á Miðgarði eru þrír talsins. Þeir eru allir bjartir, fallega hannaðir og í þeim eru skemmtilega litrík húsgögn. Hægt er að fá ýmiss konar veitingar framreiddar inn í fundarsalina eða frammi á veitingastað hótelsins; Jörgensen Kitchen & Bar.
Fundarsalapakkar - Ef óskað er eftir bjóðum við einnig upp á fundarsalapakka með notalegri hótelgistingu með ljúffengum morgunverði. Tilvalið ef hugmyndin er að halda góðan fund með hópnum í miðborg Reykjavíkur.
Ásgarður- Bjartur og fallegur fundarsalur staðsettur á Miðgarði by Center Hotels. Fundarslalurinn er 70 m² og rúmar allt að 75 manns þegar salnum er stillt upp fyrir móttöku. Hægt er að panta veitingar frá veitingastaðnum Jörgensen Kitchen & Bar.
Ás - Fundarsalurinn Ás er staðsettur á jarðhæð hótelsins Miðgarður og býr því að því að bjóða upp á einstaklega gott aðgengi. Salurinn er 40 m² að stærð og rýmir allt að 50 manns þegar salnum er stillt upp fyrir móttöku en hægt er að stilla honum upp á marga vegu. Hægt er að panta veitingar frá veitingastaðnum Jörgensen Kitchen & Bar.
Garður - Fundasalurinn Garður sem staðsettur er á Miðgarði by Center Hotels er 30 m² að stærð. Veitingarnar sem hægt er að njóta á á meðan á fundi stendur koma frá veitingastaðnum Jörgensen Kitchen & Bar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu okkar - https://www.centerhotels.com/is/fundarsalir