Dineout | Plaza
Góðir fundarsalir í hjarta Reykjavíkur
Góðir fundarsalir í hjarta Reykjavíkur
Laugavegur 120
Á Plaza eru góðir salir á frábærum stað í borginni. Salirnir eru vel aðgengilegir á fyrstu hæð hótelsins sem eru tilvaldir fyrir fundi og minni ráðstefnur. Hægt er að stilla sölunum upp á marga vegu og allur nauðsynlegur tækjabúnaður til fundarhalda er til staðar. Úrval veitinga er í boði með fundarsölunum.
Fundarsalapakkar - Við bjóðum upp á úrval af fundarsalapökkum sem fela í sér fundarsal og veitingar. Ef óskað er eftir bjóðum við einnig upp á fundarsalapakka með notalegri hótelgistingu með ljúffengum morgunverði.
Eyjafjallajökull- Salurinn er tilvalinn fyrir stærri fundi eða minni ráðstefnur. Eyjafjallajökull er staðsettur á jarðhæð Center Hotel Plaza við Aðalstræti í hjarta borgarinnar. Salurinn er 100 m² að stærð og býr að því að vera bjartur salur með stóra glugga sem snúa út í afgirt port. Hægt er að fá ýmiss konar veitingar bornar fram í salnum, allt eftir óskum fundargesta.
Hekla & Katla-
Salirnir tveir, Hekla og Katla eru jafnir að stærð og lögun. Þeir eru báðir staðsettir á jarðhæð Center Hotel Plaza og bjóða því upp á mjög gott aðgengi gesta.Hægt er að stilla sölunum tveimur upp á marga vegu en þeir taka hvor um sig allt að 65 manns þegar þeim er stillt upp fyrir móttöku. Hægt er að fá veitingar bornar fram fyrir fundargesti Plaza ef óskað er eftir því.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu okkar - https://www.centerhotels.com/is/fundarsalir