
Lón og Lunch á Jólastúkunni
Vínstúkan tíu sopar og hljómsveitin Lón blása til veislu á vínstúkunni sunnudaginn 20. Desember kl. 13 með indælum tónum og lúxusmat
Vínstúkan tíu sopar hefur fest sig í sessi sem áhugaverðasti vínbar landsins, ekki bara fyrir risastóran vínlista og óvenjulega fjölbreytt úrval af víni í glasa...

Vínstúkan tíu sopar og hljómsveitin Lón blása til veislu á vínstúkunni sunnudaginn 20. Desember kl. 13 með indælum tónum og lúxusmat
Vínstúkan tíu sopar hefur fest sig í sessi sem áhugaverðasti vínbar landsins, ekki bara fyrir risastóran vínlista og óvenjulega fjölbreytt úrval af víni í glasavís, heldur líka, og alls ekki síður fyrir það að vera með framúrskarandi úrval af skemmtilegum, óvenjulegum en umfram allt bragðgóðum tapaslegum smáréttum. Við erum semsagt, jafn mikill tapasstaður og vínbar þar sem allt getur gerst.
Vínstúkan er með mat frá 16:00-22:30 og við lengjum matmálstíman gjarnan þegar það er tilefni til, og þú getur alltaf fengið snarl og skurðerí eða þar til við lokum. Flöskutilboð alla daga á milli 16:00 & 18:00 ! Með vínflösku fylgja tveir réttir af matseðli. Við höldum alltaf hluta af borðum opnum fyrir fólk sem dettur inn af götunni, svo þó mögulega sé allt uppbókað hér, þá hvetjum við þig til að droppa við og fá sæti við barinn.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|