Dineout | Dillon Viskískóli – Dillon
Hin sívinsælu viskínámskeið halda áfram á Dillon. Takmörkuð sæti eru í boði. 17.990 kr á mann
Hin sívinsælu viskínámskeið halda áfram á Dillon. Takmörkuð sæti eru í boði. 17.990 kr á mann

Dillon
Whiskey 101 — Föstudaginn, 13. Desember kl. 18 & Laugardaginn, 18 Janúar kl 18
Whiskey 101 er námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast viskí betur. Hentar byrjendum og lengra komnum.
Farið verður yfir allt það helsta, en við munum:
– kynnast helstu afbrigðunum
– fara yfir söguna
– kynnast aðferðum til að njóta
Japönsk Whiskey — Föstudaginn, 17. Janúar, kl. 18
Japönsk Whiskey hafa náð ótrúlegum hæðum í gæðum og verða sífellt vinsælari. Í þessu námskeiði verður farið yfir það helsta í japönsku viskí.
Farið verður yfir allt það helsta við japönsk viskí, en við munum:
– kynnast helstu afbrigðunum
– fara yfir sögu og hætti
– kynnast aðferðum til að njóta
Smakkað verður á a.m.k. 5–6 mismunandi tegundum.
Amerísk Whiskey — TBA
Amerísk viskí eiga sér ríka sögu, en á þessu námskeiði verður kynning á þeim helstu og smökkun.
Hentar byrjendum og lengra komnum.
Farið verður yfir allt það helsta við amerísk viskí, en við munum:
– kynnast helstu afbrigðunum
– fara yfir sögu og hætti
– kynnast aðferðum til að njóta
Smökkum við 5 tegundir sem sýna mismun á áherslum í framleiðslu, allt frá bourbon til amerísks single malts.
Námskeiðið tekur um 2 tíma.
Um leiðbeinandann
Þorfinnur Guttormsson heiti ég og ætli það sé ekki best að titla mig sprúttsala.
Áhugi minn fyrir brenndum vínum vaknaði snemma og hefur í raun verið leiðandi afl allan minn starfsferil.
Ég er nú að sjá síþyrstum Dönum fyrir drykkjum frá brugghúsinu margfræga Mikkeller. Þar áður vann ég hjá Foss distillery og Glóbus, auk þess að hafa staðið ófáa vaktina á bak við barinn á sjálfum Dillon.
Upphaflega settum við Viskískólann á Dillon upp sem starfsmannaþjálfun. Fljótlega fóru að berast fyrirspurnir utan úr bæ, en þá lá það augljóslega við að hleypa fróðleiksfúsum að.
Um Viskískólann
Dillon er langstærsti viskíbar landsins og hefur verið það fjölda ára. Við stærum okkur af því að bjóða upp á 150 – 200 tegundir hverju sinni. Við reynum að bjóða upp á það besta úr hverjum flokki og fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast í heiminum sem tengist þessum nektar guðanna.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
Engir dagar eru opnir fyrir bókanir á þessum viðburði eins og er.