Að venju verður boðið upp á ilmandi skötuveislu á Hótel Reykjavík Grand á Þorláksmessu, 23. desember 2026.
Tvær tímasetningar eru í boði sem hægt er að velja um
11:30 - 13:30
eða
14:00 - 16:00
Hver bókun gildir í tvær klukkustundir á völdum tíma.
Gestir eru vinsamlegast beðnir um að losa borðið að þeim tíma liðnum.
Skötuhlaðborðið verður framreitt á Grand Brasserie og í veislusölunum Setrinu og Hvammi.
Athugið að sætaframboð er takmarkað.
Við mælum því með því að tryggja sér sæti sem fyrst á þessari sívinsælu Þorláksmessuhefð.
Á boðstólum verður
- Kæst vestfirsk skata
- Smáskata
- Saltfiskur
- Reykt- og nætursöltuð ýsa
- Skötustappa
- Plokkfiskur
- Hnoðmör, brætt smjör og hamsatólg
- Kartöflur, rófur og gulrætur
- Soðbrauð, rúgbrauð og laufabrauð
- Einnig verður boðið upp á síld, hákarl, harðfisk, grafinn og reyktan lax
- Fjölbreytt eftirréttahlaðborð á sínum stað
Verð
Fullorðnir: 8.200 kr.
Börn á aldrinum 6 til 11 ára njóta 50% afsláttar af verði.
Börn á aldrinum 0 til 5 ára borða frítt.
Athugið
- Fyrir hópa sem telja fleiri en 10 manns, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á radstefnur.grand@hotelreykjavik.is eða hafið samband í síma 514-8000 og veljið 2 fyrir ráðstefnudeild.
- Salurinn Gullteigur er ekki í notkun.
Bókanir og sætaskipan
- Veitingastaðurinn úthlutar borðum og sætum með það að markmiði að nýta salinn sem best og tryggja góða upplifun fyrir alla gesti.
- Gestir sem óska eftir að sitja saman eru vinsamlegast beðnir um að bóka saman í einni bókun. Séu gestir í aðskildum bókunum er ekki hægt að tryggja að þeir fái sæti saman, jafnvel þótt þess sé sérstaklega óskað.
- Við reynum eftir fremsta megni að verða við óskum um sætaskipan, en það er ávallt háð sætaframboði og fyrirkomulagi í salnum.
- Ekki er hægt að tryggja tiltekið borð, sæti eða staðsetningu í salnum nema veitingastaðurinn hafi sérstaklega staðfest það.
Skilmálar
- Komi til forfalla þarf beiðni um endurgreiðslu að berast radstefnur.grand@hotelreykjavik.is skriflega að minnsta kosti 48 klukkustundum fyrir viðburð.
- Starfsfólk áskilur sér rétt til að vísa gestum á brott vegna ósæmilegrar eða ógnandi hegðunar, ölvunar eða brota á öryggisreglum hótelsins.
- Hótelið ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum gesta sem týnast eða skemmast né á slysum sem verða vegna gáleysis gesta.