Laut – Veitingastaður við Sæmundargötu, Reykjavík
Laut er fjölskyldurekinn veitingastaður í Reykjavík með árstíðabundna norræna matargerð úr íslensku hráefni. Hádegis- og kvöldverður. Bókaðu borð á netinu.
Laut er fjölskyldurekinn veitingastaður í Reykjavík með árstíðabundna norræna matargerð úr íslensku hráefni. Hádegis- og kvöldverður. Bókaðu borð á netinu.


Hádegisverður · Kvöldverður
Laut opnaði í nóvember 2026 og býður upp á hlýlega og vandaða matreiðslu þar sem árstíðabundið hráefni, nærumhverfið og sjálfbærni eru í fyrirrúmi, matreitt af virðingu fyrir norrænni matargerðarhefð.
Laut er fjölskyldufyrirtæki stofnað af Arnóri Inga Bjarkasyni — eiganda og yfirkokki á Skóg í Litháen og fyrrum eiganda og yfirkokki á Red Brick — ásamt bróður hans, Sigurði Birni, og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka. Á ferli sínum í Litháen hlaut Arnór Grænu Michelin-stjörnuna á Red Brick og stýrði Skóg inn í Michelin-guide-inn á sínu fyrsta starfsári, stað sem hann á og rekur enn. Samhliða rekstrinum ytra var stefnan tekin á að opna einnig stað á Íslandi og færa persónulega, einlæga og hlýlega gestrisni í hjarta starfseminnar.
Nafnið Laut vísar í skjólgóða dæld eða hvamm í náttúrunni og endurspeglar skjól, ró og notalegt umhverfi. Hver einasti hluti af Laut er mótaður af náttúrunni, fjölskyldunni og djúpri virðingu fyrir landi og hráefni.
Hvað er í boði
Laut Bistró – þriðjudaga til sunnudaga kl. 10:00–17:00
Á daginn er Laut hlýlegt kaffihús og bistró í Norræna húsinu. Þar fæst kaffi og nýbakað bakkelsi, smørrebrød, súpa og salat stundarinnar, hádegisréttur dagsins og nokkrir hlýir réttir úr árstíðabundnu hráefni. Á föstudögum er Steak Friday. Öll eru velkomin og engin aldurstakmörk. Ekki þarf að bóka, en hægt er að tryggja sér borð fyrirfram.
Laut veitingastaður – miðvikudaga til laugardaga kl. 17:30–23:00
Á kvöldin breytist Laut í veitingastað með smakkseðlum byggðum á því besta sem árstíðin og nærumhverfið bjóða upp á. Gestir geta valið á milli Styttri smakkseðils (16.500 kr. á mann) og Smakkseðils Laut (24.500 kr. á mann). Fyrir stutt smakk er einnig hægt að velja à la carte: staka rétti af smakkseðlinum í minni skömmtum. Hægt er að fá vínpörun með Smakkseðli Laut. Kvöldseðlarnir taka sinn tíma og eru ætlaðir gestum 8 ára og eldri. Við mælum með að bóka borð.
Hægt er að bóka á netinu fyrir allt að 8 gesti. Síðasta kvöldbókun er kl. 21:00. Fyrir hópa 9 manns eða fleiri, vinsamlegast hafið samband við okkur á info@lautrestaurant.is og við finnum tíma sem hentar.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|