Ljósanótt á Library Bistro
Það verður mikið um að vera á Library Bistro dagana 3.–6. september. Húsið verður lifandi frá morgni til kvölds – fólk á ferð um ganga hússins, sýningar í öllum sölum hótelsins, bar á göngugötu og notaleg stemning sem fylgir Ljósanótt alla helgina.
Fimmtudagurinn 3.sept: Byrjum Ljósanóttina með góðri stemningu á barnum og í salnum. Njóttu vel valinna vína, kokteila, góðra drykkja og afslappaðra kvöldstundar með matseðlinum okkar.
Föstudagur 4.sept: Föstudagskvöldið fær extra tónlistarblæ þegar Tríó Björns Thoroddsen stígur á svið og spilar frá 20:00–22:00. Við bjóðum upp á sérstakan tveggja og þriggja rétta matseðil frá kl. 17:00 – fullkomið kvöld fyrir góðan mat, drykki og lifandi tónlist.
Laugardagur 5.sept: Iðandi líf í húsinu allan daginn. Laugardagurinn byrjar á ljúffengum brunch seðli og vel völdum réttum yfir daginn. Um kvöldið tekur við hátíðarstemning með Unu Torfa sem spilar frá 20:00–22:00 ásamt tveggja og þriggja rétta matseðli frá kl. 17:00.
Sunnudagur 6.sept: Lokaðu Ljósanótt með rólegri og notalegri sunnudagsstemningu. Njóttu brunch seðilsins okkar og vel valinna rétta yfir daginn – góðan mat, kaffi og ljúf stund í lok hátíðarhelgarinnar.
Vinsamlegast athugið: Vegna Ljósanætur getur verið aukið álag og bókunarkerfið sýnt fullbókað. Við gætum þó mögulega komið ykkur að.
Hafið samband við veitingastjórann: astros.hakonardottir@parkinn.com
Vinsamlegast athugið: Borðin eru eingöngu bókuð í 2 tíma í senn þar sem þétt er setið á ljósanótt
Hægt er að sjá 2-3 rétta matseðill hér.