Mjólkurbúið Mathöll
Mjólkurbúið á Selfossi er sannkallað matarmenningarhús. Átta veitingastaðir, tveir barir og skyrsýning.
Um Mjólkurbúið
Mjólkurbúið á Selfossi er sannkallað matarmenningarhús. Mathöll með 8 veitingastöðum, vínbar og sýning um sögu skyrs. Veitingastaðirnir eru: Samúelsson Matbar, Ísey Skyr Bar, Röstí Burgers & Beer, Romano Pasta, Takkó, Menam Thai Food, Menam Dim Sum og Flatey. Hönnun spilar lykilhlutverk í upplifun gesta. Hálfdán Pedersen er hönnuður Mjólkurbúsins og er innblástur sóttur víða, m.a. í verk Guðjóns Samúelssonar, arkitekt hússins. Á efri hæð, í risinu, er notalegur vín- og kokteilbar. Tilvalinn staður til að stoppa og njóta góðra vína og kokteila í afslöppuðu og þægilegu umhverfi.