Dineout | SKÁL x GÍSLI MATT - Jóla smakkseðill á SKÁL – SKÁL!
Gísli Matt x SKÁL! Jólamatseðill | 9. & 10. desember Það verður sannkölluð jólastemning á SKÁL! dagana 9. og 10. desember þegar Gísli Matt tekur yfir eldhúsið í...
Gísli Matt x SKÁL! Jólamatseðill | 9. & 10. desember Það verður sannkölluð jólastemning á SKÁL! dagana 9. og 10. desember þegar Gísli Matt tekur yfir eldhúsið í...

SKÁL!
Það verður sannkölluð jólastemning á SKÁL! dagana 9. og 10. desember þegar Gísli Matt tekur yfir eldhúsið í tvo daga og býður upp á sérstakan jólamatseðil.
Gísli er einn af stofnendum SKÁL! og hefur undanfarin ár verið áberandi í íslenskri matargerð. Hann er hvað þekktastur fyrir veitingastaðinn Slippinn í Vestmannaeyjum, sem hann rak í 14 ár og vakti athygli langt út fyrir landsteinana fyrir frumlega nálgun á íslenskt hráefni, staðbundnar matarhefðir og nýtingu hráefnis. Í dag stendur Gísli að baki veitingastaðnum NÆS í Vestmannaeyjum og leiðir matargerðina á Ylju í Laugarás Lagoon.
Í matargerð sinni hefur Gísli lagt áherslu á að vinna með íslenskt hráefni, árstíðirnar og matarhefðir landsins, gjarnan með óvæntum útfærslum og nýjum vinklum á kunnuglega rétti.
Á jólamatseðlinum á SKÁL! mun Gísli leika sér með íslenskar jólahefðir þar sem kunnuglegir jólatónar mæta nýjum hugmyndum. Gestir mega eiga von á fjölbreyttum réttum þar sem vandað íslenskt hráefni, sköpunargleði og jólastemning verða í aðalhlutverki.
Í aðeins tvö kvöld verður boðið upp á sérstakan fjölrétta jólamatseðil í afslappaðri og notalegri stemningu SKÁL!
Dagsetningar: 9. & 10. desember
Staðsetning: SKÁL!, Njálsgata 1, Reykjavík
Matseðill: Sérstakur fjölrétta jólamatseðill
Verð: 14.990 kr. á mann
Takmarkað sætaframboð.
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|