Dineout | SKÁL x Lucas Keller bröns pop up á Airwaves! – SKÁL!
SKÁL x Lucas Keller bröns pop up á Airwaves!
SKÁL x Lucas Keller bröns pop up á Airwaves!


SKÁL!
Um Airwaves-helgina tekur Lucas Keller yfir eldhúsið á SKÁL! og býður upp á sérstakan bröns þar sem gamlir uppáhaldsréttir mæta nýjum hugmyndum.
Lucas er mörgum Íslendingum að góðu kunnur sem einn af þeim sem stóðu á bak við Coocoo’s Nest, einn ástsælasta brönsstað Reykjavíkur, þar sem hann skapaði sér nafn fyrir frumlega og einstaklega góðan bröns.
Nú snýr Lucas aftur með nýja sýn á brönsinn. Á matseðlinum blandast saman spennandi hráefni, óvæntar bragðsamsetningar og réttir sem margir hafa saknað.
Og já, Eggs Florentine og frægu súrdeigspönnukökurnar hans Lucasar eru mættar aftur!
Í aðeins tvo daga verður hægt að njóta þessa sérstaka bröns á SKÁL! í miðri Airwaves-stemningunni.
7.–8. nóvember
12:00–14:30
Verð: 6.900 kr. á mann
MATSEÐILL
Súrdeigsbrauð Lucasar
Með jómfrúarólífuolíu
Graskers-chawanmushi
Japanskt grasker, shiitake-sveppir og stökk chiliolía
Reyktur tómatur
Marineruð eggjarauða og sölvarasp
Kartöflur alla café carbonara
Steiktar kartöflur, guanciale frá Tariello, eggjasósa og kaffi
Brasaður lambaháls
Ferskar jurtir og súrsætar valhnetur
Kjúklingabauna- og heslihnetusalat
Blaðselja, 12 mánaða þroskaður Tindur og síkóría
Eggs Florentine með Sichuan-pipar
Svartkál, hleypt egg, gráðaostur og chiliolía
Súrdeigspönnukökur Lucasar
Þeytt brúnað smjör og síróp
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|