Dineout | Ás - Laugardalur, Reykjavík
Veislusalur í Laugardal fyrir allskyns viðburði
Veislusalur í Laugardal fyrir allskyns viðburði
Vesturbrún 30
Stærri safnaðarsalur Áskirkju, Ás tekur um 160 manns í sæti eða um 300 manns í standandi boð og er hann á tveimur pöllum, Flygill og hljóðkerfi. Móttökueldhús, borðbúnaðar-og dúkaleiga. Salurinn Ás er á sömu hæð og kirkjuskipið sjálft. Lofthæð salarins er mikil og aflíðandi með einfaldri en samt glæsilegri lýsingu sem minnir á stjörnur. Sérlega háir gluggar. Stórt andyri með fatahengjum á tveimur stöðum ásamt salernum.
Aðkoma að sal er frá Vesturbrún. Mikið er af bílastæðum en einnig gengur vagn 14 rétt fyrir utan.Hið þríhyrnda byggingaform Áskirkju er vel þekkt enda sést hún víða að úr borginni. Staðsetning hennar er með því besta sem gerist miðsvæðis í Reykjavík þar sem hana ber hátt yfir Laugardalinn með glæsilegu útsýni og ofan við hana er Laugarás friðlýst náttúruvætti. Fallegt umhverfi kirkjunnar er gjarnan notað til myndatöku samhliða veislum og athöfnum.