Dineout | Theater menu - Kvennaráð - 20:00 shows – Rauða Húsið
Dinner and a show - Kvennaráð
Dinner and a show - Kvennaráð

Rauða Húsið
Leikhús og góður matur í Rauða Húsinu!
Í tilefni sýninga Leikfélags Eyrarbakka á leikritinu Kvennaráð eftir Sellu Páls bjóðum við upp á sérstakan leikhúsmatseðil fyrir kvöldsýningar.
Gestir geta valið um tveggja eða þriggja rétta máltíð á föstu verði, með tveimur valkostum í forrétt og aðalrétt og ljúffengum eftirrétti.
2 réttir – 6.490 kr. á mann
Val um forrétt og aðalrétt eða aðalrétt og eftirrétt.
3 réttir – 7.990 kr. á mann
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur.
Velja má á milli tveggja forrétta og tveggja aðalrétta.
Frumsýningin hefst kl. 20:00 og við tökum á móti matargestum kl. 18:00, eða örlítið fyrr eftir samkomulagi.
Til að tryggja að allir geti notið matarins í rólegheitum og mætt tímanlega á sýninguna verður eingöngu boðið upp á leikhúsmatseðilinn þetta kvöld.
Borðapantanir eru nauðsynlegar og við óskum eftir að gestir velji rétti fyrirfram.
Hægt er að bóka borð hér eða í síma 483 3330.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Athugið að leikhúsmiðar eru seldir sérstaklega á Tix.is og eru ekki innifaldir í verði máltíðarinnar.
Miðar á sýninguna: https://tix.is/event/22473/kvennarad
Hlökkum til að taka á móti leikhúsgestum!
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|