Dineout | Theater menu - Kvennaráð - 15:00 showings – Rauða Húsið
Pre-show lunch or post-show dinner
Pre-show lunch or post-show dinner

Rauða Húsið
Leikhús og góður matur í Rauða Húsinu!
Í tilefni sýninga Leikfélags Eyrarbakka á leikritinu Kvennaráð eftir Sellu Páls bjóðum við upp á sérstakan leikhúsmatseðil, bæði fyrir og eftir sýningar.
Gestir geta valið um tveggja eða þriggja rétta máltíð á föstu verði, með tveimur valkostum í forrétt og aðalrétt og ljúffengum eftirrétti.
2 réttir – 6.490 kr. á mann
Val um forrétt og aðalrétt eða aðalrétt og eftirrétt.
3 réttir – 7.990 kr. á mann
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur.
Velja má á milli tveggja forrétta og tveggja aðalrétta.
Athugið að leikhúsmiðar eru seldir sérstaklega á Tix.is og eru ekki innifaldir í verði máltíðarinnar.
Miðar á sýninguna: https://tix.is/event/22473/kvennarad
Hlökkum til að taka á móti leikhúsgestum!
Vinsamlegast látið okkur vita fyrirfram um ofnæmi, óþol eða sérstakar óskir um mataræði, svo sem grænmetis- eða veganrétti, svo við getum komið til móts við alla gesti.
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|