Kvöldstund með frönskum dægurperlum
Sunnudaginn 21. apríl kl. 20:00 – Sólon Islandus
Les Métèques bjóða til kvöldstundar með nokkrum vel völdum frönskum dægurlögum eftir Gainsbourg, Moustaki, Brassens og fleiri meistara franskrar dægurtónlistar frá síðustu öld. Gérard Lemarquis kynnir á íslensku og setur lögin í sögulegt og menningarlegt samhengi.
Les Métèques: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar), Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla).
Kynnir og sögumaður: Gérard Lemarquis.
Aðgangseyrir: 3.500 í forsölu - 3.900 við innganginn